Icelandic
Birt: 2020-01-15 17:30:30 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 15. janúar 2020. Uppgjör viðskipta fer fram 17. janúar 2020.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.040.000.000 á bilinu 1,44% - 1,52%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.040.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,52%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 52.327.152.565 en er nú ISK 53.367.152.565.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is