English Icelandic
Birt: 2020-01-14 16:56:20 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 29 talsins og námu samtals 3.880 m. kr. að nafnverði.

Tólf tilboð að fjárhæð 2.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,82%-3,90%. Tilboðum að fjárhæð 1.840 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,87%. Heildarstærð flokksins verður 21.340 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sautján tilboð að fjárhæð 1.840 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,43%-1,60%. Tilboðum að fjárhæð 1.660 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,50%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m.kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 2.620 m. kr.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. janúar 2020. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.