English Icelandic
Birt: 2019-11-27 11:33:20 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf. gefur út nýjan skuldabréfaflokk

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í nýjum skuldabréfaflokki með auðkennið LYKILL 20 11. Flokkurinn er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur með 4,20% föstum vöxtum, mánaðarlegum greiðslum og lokagjalddaga þann 27. nóvember 2020.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á hreina verðinu 100,00 (pari) í lokuðu útboði.

Uppgjörsdagur viðskipta er 28. nóvember 2019. Óskað verður eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, forstöðumaður fjárstýringar Lykils fjármögnunar hf., arnarg@lykill.is, s: 540 1700