English Icelandic
Birt: 2019-11-25 15:44:00 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil

Talsverðar fjárfestingar – Ágæt afkoma

Heildarafkoma samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu níu mánuðum ársins var ágæt, það er jákvæð um 4,5 milljarða króna. Lítilsháttar aukning var á tekjum en kostnaður jókst, meðal annars vegna vaxandi umsvifa á húsnæðismarkaði. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Árshlutareikningur samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2019 var staðfestur af stjórn OR í dag.

Miklar fjárfestingar – græn skuldabréf

Mikið húsnæði er í byggingu á þjónustusvæði fyrirtækisins. Það ásamt nauðsynlegri endurnýjun mikilvægra hita- og vatnsveituæða endurspeglast í miklum fjárfestingum samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins. Útlit er fyrir að úr slíkum fjárfestingum dragi á næstu árum. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 13,1 milljarði króna fyrstu níu mánuði ársins en var 10,4 milljarðar króna á sama tímabili 2018.

Hvorttveggja viðhalds- og nýfjárfestingar í virkjunum og veitukerfum samstæðu OR eru á meðal verkefna sem OR fjármagnar að hluta með útgáfu grænna skuldabréfa. Sú útgáfa hófst á fyrri hluta ársins 2019. Eftirspurn hefur verið talsvert umfram framboð í útboðum á bréfunum, kaupendahópurinn fölbreyttari en áður og hagstæð kjör hafa fengist.

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála OR:

Fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaganna er traust. Það sést meðal annars á því að þrátt fyrir miklar fjárfestingar hafa Veitur orðið við áskorunum verkalýðssamtaka og samtaka atvinnurekenda um að halda verði fyrir grunnþjónustu sem stöðugustu. Þá stendur eignfjárhlutfall nánast í stað og heildarafkoman er vel viðunandi. Við sjáum líka á þeim kjörum sem OR fær á fjármálamarkaði að lánveitendur telja reksturinn traustan.

Framundan eru mikilvæg verkefni í starfseminni. Ein stærsta einstaka fjárfesting okkar á næstu árum er uppfærsla á orkumælum viðskiptavina. Hún mun taka nokkur ár en gera okkur kleift að auka og bæta þjónustuna. Við erum líka stöðugt að meta áhrif loftslagsbreytinga á okkar starfsemi, til lengri og skemmri tíma. Orkuveita Reykjavíkur hefur metnað til vera leiðandi í baráttunni við loftlagsvána. Við erum líka meta með hvaða hætti við þurfum að auka seiglu okkar til að mæta því sem verða vill í þeim efnum. Jafnframt leika Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtækin lykilhlutverk í að gera öðrum kleift að draga úr sínu kolefnisspori og þar vegur uppbygging innviða fyrir orkuskipti í samgöngum þyngst.

Yfirlit stjórnenda

 F3 2015F3 2016F3 2017F3 2018F3 2019
Fjárhæðir í milljónum króna     
Rekstrartekjur28.951  29.921  31.310  33.459  33.578 
Rekstrarkostnaður (10.718) (11.785) (11.744) (12.540) (13.377)
      
EBITDA18.234  18.136  19.566  20.919  20.201 
Afskriftir (7.172) (7.584) (7.051) (6.965) (8.907)
Rekstrarhagnaður (EBIT)11.061  10.551  12.515  13.954  11.294 
      
Reiknaður tekjuskattur tímabilsins (3.421) (3.593) (95)178 
Afkoma tímabilsins3.093  9.368  10.512  5.924  4.513 

Lykiltölur fjármála

Fleiri lykiltölur fjármála OR-samstæðunnar eru birtar á vef Orkuveitu Reykjavíkur ásamt fjárhagslegum markmiðum sem unnið er eftir.

Slóðin er https://www.or.is/fjarmal/lykiltolur-fjarmala/


Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR

516 6100

Viðhengi


OR Arshlutareikningur samstu F3 2019.pdf