Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Tilboð í útboðinu voru 22 talsins og námu samtals 2.160 m. kr. að nafnverði. Tvö tilboð að fjárhæð 180 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,68%-3,70%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Ellefu tilboð að fjárhæð 1.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,00%-4,10%. Tilboðum að fjárhæð 280 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,07%. Heildarstærð flokksins verður 19.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Níu tilboð að fjárhæð 940 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,55%-1,58%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. nóvember 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.
|