English Icelandic
Birt: 2019-10-24 10:15:00 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Marel: 3F 2019 fjárfestakynning

Marel hf. birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2019 eftir lokun markaðar þann 23. október 2019. Meðfylgjandi má finna 3F 2019 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir.

Fundur með markaðsaðilum – vefvarp og símafundur

Í dag, fimmtudaginn 24. október 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.

Fundinum er einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

IS: +354 800 7520
NL: +31 20 721 9496
UK: +44 333 300 9269
US: +1 833 526 8347

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatenglar Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.

Viðhengi


Marel Q3 2019 Investor Presentation_vF.pdf