Icelandic
Birt: 2019-10-23 18:04:10 CEST
TM hf.
Boðun hluthafafundar

Tryggingamiðstöðin hf. – Upplýsingar og gögn vegna hluthafafundar 13. nóvember 2019.

Á hluthafafundi í Tryggingamiðstöðinni hf. 13. nóvember næstkomandi, sem áður hefur verið boðað til, sbr. m.a. með tilkynningu í Kauphöll 16. þessa mánaðar, verður svofelld tillaga um hækkun hlutafjár lögð fyrir fundinn til samþykktar:

„Til að fjármagna kaup á Lykli fjármögnun hf. samþykkir hluthafafundur í Tryggingamiðstöðinni hf. 13. nóvember 2019 að stjórn félagsins verði veitt heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 125.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar skulu hafa forgangsrétt til nýrra hluta sem verða gefnir út á grundvelli heimildarinnar í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og samþykktir félagsins. Efnt verður til almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum þar sem núverandi hluthafar njóta forgangsréttar í samræmi við hlutafjáreign sína en almennum fjárfestum verður gefinn kostur á að skrá sig fyrir þeim hlutum sem forgangsréttarhafar nýta sér ekki. Í útboðsferlinu er stjórninni veitt heimild til að ákvarða útboðsgengi hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur að öðru leyti.

Arion banka hf. verður falið að hafa umsjón með útboðinu sem mun fara fram jafnskjótt og útboðslýsing hefur verið gerð og skylt er gefa út í tengslum við útboðið.

Við samþykktir félagsins bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:

Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 125.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar njóta forgangs til áskriftar að hinum nýju hlutum i samræmi við hlutafjáreign sína en almennum fjárfestum verður gefinn kostur á að skrá sig fyrir þeim hlutum sem forgangsréttarhafar nýta sér ekki. Andvirði hlutafjáraukningarinnar skal notað til fjármögnunar á kaupum félagsins á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi þessara hluta, sölureglur, fresti til áskriftar og fresti til greiðslu þeirra. Stjórn félagsins skal heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við útgáfuna. Heimild þessi fellur úr gildi eigi síðar en 31. mars 2021.““

Með tillögunni verða eftirtalin gögn lögð fram á fundinum sem jafnframt eru meðfylgjandi í viðhengi:

a.      Ársreikningur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. fyrir árið 2018 sem samþykktur var á aðalfundi félagsins 14. mars 2019 með öllum greiddum atkvæðum.

b.    Árshlutareikningur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 30. september 2019 með sérstakri könnunaráritun óháðs endurskoðanda (bls. 4 í árshlutareikningnum).

c.    Kynning á kaupum á Lykli fjármögnun hf. sem einnig fylgdi með tilkynningu um kaupin í Kauphöll 10. október sl.

Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.

Viðhengi


Arshlutareikningur samstu TM 30.9.2019.pdf
Arsreikningur TM fyrir ari 2018.pdf
Kynning vegna kaupa a Lykli fjarmognun hf..pdf