English Icelandic
Birt: 2019-10-10 18:37:24 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 31 talsins og námu samtals 7.280 m. kr. að nafnverði.

Átta tilboð að fjárhæð 1.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,05%-4,13%. Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,09%. Heildarstærð flokksins verður 6.820 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimm tilboð að fjárhæð 2.680 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,13%-4,15%. Tilboðum að fjárhæð 1.920 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,13%. Að auki gefur Landsbankinn út 3.000 m.kr. til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 19.220 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tvö tilboð að fjárhæð 60 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfunni 1,54%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sextán tilboð að fjárhæð 3.320 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,58%-1,64%. Tilboðum að fjárhæð 2.920 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,63%. Heildarstærð flokksins verður 47.900 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. október 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.