Icelandic

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Birt: 2019-09-18 18:37:01 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 18. september 2019. Uppgjör viðskipta fer fram 20. september 2019.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.635.000.000 á bilinu 1,60% - 1,76%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 735.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,64%. Útistandandi fyrir voru ISK 49.872.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 50.607.152.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 420.000.000 á bilinu 1,71% - 1,76%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 220.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,74%. Útistandandi fyrir voru ISK 22.124.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 22.344.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is