Almenna leigufélagið ehf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148 og AL231124Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148 og AL231124 KPMG er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna AL260148 og AL231124. Eftirlitsaðili hefur það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna. KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningi sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna. Niðurstaða könnunar KPMG er í samræmi við útreikninga útgefanda að skuldabréfaflokkarnir AL260148 og AL231124 standast öll fjárhagsleg og sérstök skilyrði miðað við dagsetninguna 30.6.2019. Niðurstaða könnunarinnar má sjá hér í viðhengi. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848-5290 eða sigurdur@al.is
|