English Icelandic
Birt: 2019-09-16 18:37:43 CEST
Kvika banki hf.
Innherjaupplýsingar

Kvika banki hf. lýkur víxlaútboði

Kvika banki hf. hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, KVB 20 0319. Í heildina bárust tilboð upp á 2.300 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.000 milljónir kr. Víxlarnir voru seldir á 4,35% flötum vöxtum og áætlað er að taka þá til viðskipta á Nasdaq Ísland á næstu vikum.