English Icelandic
Birt: 2019-09-04 19:07:21 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.720 m. kr. og fjöldi tilboða var 20.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 11 tilboð að nafnvirði samtals 1.820 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,67-1,72%. Öllum tilboðum í flokkinn ARION CBI 26 var hafnað að þessu sinni.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 9 tilboð að nafnvirði samtals 900 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 4,38-4,45%.  Tilboðum að nafnvirði 600 m.kr. á kröfunni 4,43% voru samþykkt.  Heildarstærð flokksins verður 19.230 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 11. september 2019.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Magnús Jensson, forstöðumaður fjármögnunar Arion banka, eirikur.jensson@arionbanki.is, s. 444 6760