English Icelandic
Birt: 2019-09-03 18:11:24 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á víxlaflokknum LBANK 200228.

Tíu tilboð að fjárhæð 2.760 m. kr. bárust í flokkinn og voru vextir tilboða á bilinu 4,00%-4,20%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.040 m. kr. á 4,09% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,0940.

Fjárfestum stóð til boða að greiða fyrir víxla í útboðinu með skuldabréfum í flokki LBANK CB 19 á fyrirfram ákveðna verðinu 100,066. Niðurstaða útboðs er að bankinn kaupir til baka 460m að nafnverði í flokki LBANK CB 19.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. september 2019.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.