Icelandic
Birt: 2019-08-29 21:30:53 CEST
Heimstaden hf.
Reikningsskil

Heimavellir hf.: Uppgjör fyrri árshelmings 2019

 Heimavellir hf. Fréttatilkynning 29. ágúst 2019.

Heimavellir hf.: Áframhaldandi rekstrarbati á fyrri árshelmingi 2019.

Árshlutareikningur Heimavalla hf. fyrir fyrri árshelming 2019 var samþykktur af stjórn þann 29. ágúst 2019.

Helstu atriði:

  • Leigutekjur námu 1.701 m.kr. á fyrri árshelmingi 2019 (2018: 1.823 m.kr.) sem er 7% lækkun milli ára og skýrist af því að íbúðum í eignasafninu fækkar um 257 milli tímabila eða 13%.
  • Íbúðir í rekstri þann 30. júní 2019 voru 1.618 talsins og til viðbótar eru 103 íbúðir í sölumeðferð.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og söluhagnað (EBIT) nam 1.024 m.kr. eða 60,2% af veltu (2018: 1.056 m.kr. og 57,6% af veltu).
  • Ef litið er fram hjá einskiptis liðum og áhrifum af innleiðingu IFRS16 reikningsskilastaðals er rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og söluhagnað 61,7% af veltu á fyrri árshelmingi 2019.
  • Félagið seldi eignir fyrir 6.017 m.kr. á tímabilinu og var söluhagnaður vegna þeirra 190 m.kr. eða 3,3% af bókfærðu virði eigna.
  • Matsbreyting eignasafnsins nam 75 m.kr. á 2. ársfjórðungi 2019 (2018: -3 m.kr.). Helstu áhrifaþættir á matsbreytingu eru lækkandi grunnvextir í verðmatslíkani til hækkunar en hækkandi fasteignagjöld samhliða hærra fasteignamati til lækkunar.
  • Hrein fjármagnsgjöld eru 1.228 m.kr. á tímabilinu og lækka um 92 m.kr milli ára.
  • Hagnaður tímabilsins nam 2,8 m.kr. (2018: -136 m.kr.).
  • Virði fjárfestingareigna félagsins án leigueigna og íbúða í sölumeðferð þann 30. júní 2019 var 45.945 m.kr.
  • Eigið fé þann 30. júní 2019 var 18.799 m.kr. og var eiginfjárhlutfall félagsins 34,5%. Innra virði hlutafjár í árslok eru 1,67 kr. per hlut.
  • Vaxtaberandi skuldir voru 31.620 m.kr. þann 30. júní 2019 (2018 34.701 m.kr.).
  • Vegnir meðalvextir félagsins eru 4,14% á verðtryggðum skuldum, sem nema 84% af langtímaskuldum félagsins.
  • Í kjölfar hraðari eignasölu en gert var ráð fyrir í ársbyrjun uppfærir félagið afkomuspá sína þannig að tekjur ársins 2019 eru áætlaðar 3.300 m.kr (lækka um 100 m.kr.) en tekjur ársins 2020 eru áætlaðar 3.000 m.kr. (óbreyttar). Áætluð EBITDA framlegð er óbreytt, 63,5% - 64,8% 2019 og 66,6% - 67,8% 2020.
    Þar sem endurskipulagning eignasafns félagsins hefur gengur vel það sem af er ári þá hefur söluáætlun félagsins sem birt var í Kauphöll þann 22. janúar 2019 verið uppfærð að nýju og gerir nú félagið ráð fyrir að heildareignasala frá 1. júlí 2019 til 2021 verði 14.500 -15.500 m.kr. og telji ríflega 400 íbúðir.



Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Gauti Reynisson
framkvæmdastjóri , s:860 5300
gauti@heimavellir.is



Viðhengi


Heimavellir hf. arshlutareikningur 30.6.2019 final.pdf
Heimavellir Uppgjorskynning 2F 19.pdf
Tilkynning me halfsarsuppgjori Heimavalla hf. 2019.pdf