Icelandic
Birt: 2019-08-29 15:00:00 CEST
Reykjavíkurborg
Árshlutareikningur - 6 mán.

Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – júní 2019

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2019 var afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 29. ágúst.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.653 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 2.318 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 665 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Lakari rekstrarniðurstaða skýrist einkum af lægri tekjum af sölu byggingarréttar, lægri skatttekjum og hærri gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.811 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 3.188 mkr eða 1.377 mkr undir áætlun.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 7.745 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 6.568 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 1.177 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Betri rekstrarniðurstöðu má einkum rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 11.667 mkr sem er 2.907 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní 672.629 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 343.002 mkr og eigið fé var 329.626 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 17.542 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49,0% en var 49,4% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf.

Reykjavík, 29. ágúst 2019.

Nánari upplýsingar veitir
Halldóra Káradóttir fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
halldora.karadottir@reykjavik.is

Viðhengi


Reykjavikurborg - arshlutareikningur januar - juni 2019.pdf
Skyrsla Fjarmala- og ahttustyringarsvis me arshlutareikningi januar - juni 2019.pdf