Lykill fjármögnun hf. gefur út nýjan óverðtryggðan skuldabréfaflokkLykill fjármögnun hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í nýjum skuldabréfaflokki með auðkennið LYKILL 23 09. Flokkurinn er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur til 4 ára. Seld voru skuldabréf í lokuðu útboði að nafnverði 1.000 m.kr. á hreina verðinu 100,00 (pari) sem samsvarar 5,30% ávöxtunarkröfu. Skuldabréfaflokkurinn ber fasta 5,20% óverðtryggða vexti og er tryggður með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils. Skuldabréfin eru með jöfnum greiðslum höfuðstóls og vaxta á þriggja mánaða fresti og lokagjalddaga 15. september 2023. Skuldabréfin verða tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Fossar markaðir höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145 Sighvatur Sigfússon, sviðsstjóri Fjármálasviðs Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700
|