English Icelandic
Birt: 2019-08-27 17:40:05 CEST
Síminn hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.

Síminn hf. - Stöðugur rekstur og framtíðarhorfur góðar

Helstu niðurstöður úr rekstri á 2F 2019:

Samanburðarfjárhæðir á öðrum ársfjórðungi 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis.

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2019 námu 7.115 milljónum króna samanborið við 7.153 milljónir króna á sama tímabili 2018 og lækka um 0,5% milli tímabila.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.602 milljónum króna á 2F 2019 samanborið við 2.386 milljónir króna á sama tímabili 2018 og hækkar því um 216 milljónir króna eða 9,1% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 36,6% fyrir annan ársfjórðung 2019 en var 33,4% á sama tímabili 2018. Að teknu tilliti til breytinga vegna IFRS 16 þá nam EBITDA á 2F 2018 2.581 milljón króna og EBITDA hlutfall  var 36,1%.
  • Hagnaður á 2F 2019 nam 798 milljónum króna samanborið við 853 milljónir króna á sama tímabili 2018.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.087 milljónum króna á 2F 2019 en var 2.438 milljónir króna á sama tímabili 2018. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1.735 milljónum króna á 2F 2019 en 2.088 milljónum króna á sama tímabili 2018.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 16,5 milljörðum króna í lok 2F 2019 en voru 17,2 milljarðar króna í árslok 2018. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16,0 milljarðar króna í lok 2F 2019 og eru óbreyttar frá árslokum 2018.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 269 milljónum króna á 2F 2019 en voru 190 milljónir króna á sama tímabili 2018. Fjármagnsgjöld námu 301 milljónum króna, fjármunatekjur voru 46 milljónir króna og gengistap var 14 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 56,3% í lok 2F 2019 og eigið fé 36,3 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum sátt við uppgjörið og þann stöðuga og fyrirsjáanlega rekstur sem þar gefur að líta. EBITDA eykst miðað við sama fjórðung í fyrra auk þess sem myndarleg aukning er í EBITDA frá fyrsta fjórðungi þessa árs, en sá fjórðungur var undir væntingum af ýmsum sökum. Launahækkanir kjarasamninganna komu til framkvæmda við upphaf annars ársfjórðungs og því er mikilvægt að launakostnaður samstæðunnar er lægri á þessum fjórðungi í ár en á sama tímabili í fyrra. Áframhaldandi aðgerðir til að draga úr kostnaði, eins og þær sem var ráðist í við upphaf þessa árs, eru lykilþáttur í að ná fram slíkum sparnaði.

Sala á farsímatækjum dregst saman milli ára sem er í takti við þróun erlendis, neytendur kjósa að eiga símtækin sín lengur en áður. Framlegð af tækjasölu er lág og því hefur þessi þróun lítil áhrif á afkomu samstæðunnar. Tekjur af farsímaþjónustu skipta okkur langtum meira máli en tækjasala, en þær lækka áfram milli ára. Lykilatriði þar er að lækkunin nú er að mestu bundin við heildsölu og reiki, en ekki kjarnarekstur Símans sem er smásala til viðskiptavina á Íslandi. Viðskiptavinum fjölgar, til dæmis er þjónustuleiðin Þrenna í örum vexti, sem gefur góð fyrirheit fyrir næstu misseri. Ekki er lengur stöðugt verðfall á farsímamarkaði, eins og verið hefur mörg undanfarin ár, en samkeppni er þó áfram hörð, sérstaklega á fyrirtækjamarkaðinum.

Tekjuvöxtur var í upplýsingatækni á fjórðungnum þrátt fyrir þyngra rekstrarumhverfi en fyrr. Enn virðast fyrirtæki fara varlega í að stofna til nýrra verkefna – til dæmis í upplýsingatækni – og samkeppni tæknifyrirtækja um einstaka fyrirtækjasamninga er hörð. Árangur annars ársfjórðungs hjá Sensa er því ánægjulegur, en hefur ekki forspárgildi um tiltekna fjórðunga haustsins og vetrarins. Auk fastra langtímaverkefna Sensa eru ýmis spennandi verkefni í burðarliðnum hjá félaginu.

Fjárfestingar í innviðum hafa gengið vel á þessu ári og í lok þessa árs verður Míla búin að leggja ljósleiðara til um 80 þúsund heimila á landinu. Framkvæmdir þessar eru fjárfrekar á meðan á þeim stendur, kostnaður á hvert heimili er lágur og innviðirnir munu vara til áratuga. Símasamstæðan lagði sinn fyrsta ljósleiðara árið 1986 og sá er ennþá í notkun.

Tekjur af sjónvarpsþjónustu eru á góðri siglingu. Breytingar í fyrrahaust á verði, til hækkunar í sjónvarpsþjónustu og til lækkunar á internet þjónustu, skekkja samanburðinn á þessum tilteknu vörum milli ára. Keppikefli okkar er að fjölga viðskiptavinum í Sjónvarpi Símans Premium og í Heimilipakka, en hvort tveggja tókst sem nemur nokkrum þúsundum heimila milli ára. Nú þegar enski boltinn er orðinn hluti af Sjónvarpi Símans Premium vonumst við til að sú vara styrkist enn frekar í sessi.

Auk þess er Síminn Sport vara sem seld er stök á lágu verði yfir öll sjónvarpskerfi í landinu. Enska úrvalsdeildin hófst fyrr í þessum mánuði og er uppsöfnuð sala á Síminn Sport og Premium nú umfram þær væntingar sem við höfðum á þessum tímapunkti, en enski boltinn fellur vel að vöruframboði félagsins á fjölbreytilegan hátt. Verði á Síminn Sport og Premium var meðvitað stillt í hóf, meðal annars til að draga úr freistingu til ólöglegs streymis. Við erum ekki komin á leiðarenda og þurfum að halda áfram og selja fleiri heimilum aðgang, en nú er yfir þriðjungur heimila landsins með löglegt aðgengi að ensku úrvalsdeildinni á langtum hagstæðara verði en áður.

Við lítum bjartsýn til vetrarins.“

 

Kynningarfundur 28. ágúst 2019

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor

og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8776671/player  

 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 (oskarh@siminn.is)

 

Viðhengi


Fjarfestakynning 2F 2019.pdf
Siminn 30.06.2019.pdf
Siminn hf - Afkomutilkynning 2F 2019.pdf