Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga 480 m.kr. á fyrri hluta ársins 2019 Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 480 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2019 samanborið við 310 milljónir króna á sama tímabili árið 2018. Heildareignir Lánasjóðsins þann 30. júní voru 114,8 milljarðar króna samanborið við 105,4 milljarða í árslok 2018. Heildarútlán sjóðsins námu 108 milljörðum króna samanborið við 99 milljarða í árslok 2018. Stækkun á lánasafni síðastliðna 12 mánuði nemur 17 milljörðum króna. Eigið fé Lánasjóðsins nam 17.964 milljónum króna á móti 17.912 milljónum króna í árslok 2018. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 71% en var 77% í árslok 2018. Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu á fyrri hluta ársins var 11,4 milljarðar króna en var 13,4 milljarðar á sama tíma í fyrra. Á síðustu 12 mánuðum nam verðbréfaútgáfa 20,6 milljörðum króna. Helstu niðurstöður í milljónum króna: Rekstur fyrstu 6 mánaða ársins | 1.1.-30.6.19 | 1.1.-30.6.18 | | | | Hreinar vaxtatekjur................................ | 545 | 427 | Aðrar rekstrartekjur (gjöld).................... | 40 | (18) | Almennur rekstrarkostnaður.................. | 104 | 99 | Hagnaður tímabilsins............................ | 480 | 310 | | | | Efnahagur í lok tímabils | 30.jún.19 | 31.des.18 | | | | Handbært fé........................................... | 6.359 | 6.180 | Útlán og kröfur....................................... | 108.067 | 99.051 | Eignir samtals....................................... | 114.768 | 105.408 | | | | Verðbréfaútgáfa...................................... | 93.719 | 84.536 | Aðrar lántökur.......................................... | 2.910 | 2.878 | Skuldir samtals...................................... | 96.804 | 87.496 | | | | Eigið fé.................................................... | 17.964 | 17.912 | | | | CAD hlutfall (Basel II).............................. | 71% | 77% | Framtíðarhorfur
Lánasjóðurinn mun starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé á hagstæðum kjörum. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. starfar eftir hlutafélagalögum nr. 2/1995, lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, lögum um sjóðinn nr. 150/2006 og er undir eftirliti Fjármálaeftirlits. Meginhlutverk Lánasjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum með veitingu lána eða ábyrgða. Útlán sjóðsins takmarkast við verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu. Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.
|