English Icelandic
Birt: 2019-08-21 19:13:37 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 28 talsins og námu samtals 4.420 m. kr. að nafnverði.

Fimm tilboð að fjárhæð 600 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,47%-4,56%. Tilboðum að fjárhæð 200 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,48%. Heildarstærð flokksins verður 6.200 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fjögur tilboð að fjárhæð 240 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,45%-4,48%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,48%. Heildarstærð flokksins verður 13.880 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Níu tilboð að fjárhæð 1.200 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,65%-1,75%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,74%. Heildarstærð flokksins verður 37.980 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 2.380 m. kr. að nafnverði í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,63%-1,70%. Tilboðum að fjárhæð 2.080 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,68%. Heildarstærð flokksins verður 43.460 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Samhliða útboðinu fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í ofangreindu útboði með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CB 19 á fyrirframákveðna verðinu 100,165. Niðurstaðan leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 700 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CB 19.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. ágúst 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.