Arion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 18 tilboð upp á 2.980 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.680 milljónir kr. Í heild bárust 3 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 400 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,20% - 4,30%. Engin tilboð voru samþykkt í 5 mánaða víxilinn að þessu sinni. Í heild bárust 15 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.580 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,17% - 4,30%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.680 milljónir á 4,20% flötum vöxtum. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 19. júlí næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, fjármögnun Arion banka, kristin.erla.jonsdottir@arionbanki@arionbanki.is, s. 444 6272
|