English Icelandic
Birt: 2019-07-03 18:56:14 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.040 m. kr. og fjöldi tilboða var 24.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 18 tilboð að nafnvirði samtals 2.460 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,59-1,65%. Tilboðum að nafnvirði 1.960 m.kr. á kröfunni 1,63% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 12.520 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 6 tilboð að nafnvirði samtals 580 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 4,45-4,57%.  Tilboðum að nafnvirði 580 m.kr. á kröfunni 4,57% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 15.180 m.kr eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Arion banki 260 m.kr. af ARION CBI 19 gegn sölu í útboðinu.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. júlí 2019.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Magnús Jensson, forstöðumaður fjármögnunar Arion banka, eirikur.jensson@arionbanki.is, s. 444 7468