Lykill fjármögnun hf: Niðurstöður aðalfundarAðalfundur Lykils fjármögnunar hf. var haldinn fimmtudaginn 27. júní 2019 kl. 11 í húsakynnum félagsins að Ármúla 1, Reykjavík. Helstu niðurstöður fundarins: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár Aðalfundur samþykkti skýrslu stjórnar samhljóða. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár Aðalfundur samþykkti ársreikning vegna ársins 2018. 3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps félagsins Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að hluthöfum verði greiddar 1.200 milljónir króna í arð vegna ársins 2018. 4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins Engar tillögur lágu fyrir um breytingar á samþykktum félagsins og eru þær því óbreyttar. 5. Kosning stjórnar Sjálfkjörið var í stjórn og varastjórn félagsins. Aðalmenn: Hörður Gunnarsson Jóhanna Waagfjörð Jón Örn Guðmundsson Magnús Scheving Thorsteinsson Brynja Steinsen Varamenn: Gunnar Þór Þórarinsson Steinn Logi Björnsson 6. Kosning endurskoðanda Tillaga stjórnar um að Deloitte ehf. verði áfram endurskoðunarfélag Lykils fjármögnunar hf. var samþykkt. 7. Ákvörðun um þóknun stjórnar Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytt stjórnarlaun. 8. Starfskjarastefna Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 9. Staða umsóknar Lykils til Fjármálaeftirlitsins um starfsleyfi sem viðskiptabanki á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Farið var yfir stöðu umsóknar Lykils um starfleyfi sem viðskiptabanki sem er á áætlun. 10. Önnur mál Önnur mál voru ekki borin upp og fundi slitið. Nánari upplýsingar veitir Árni Huldar Sveinbjörnsson, s. 540 1700
|