Icelandic
Birt: 2019-06-19 19:07:13 CEST
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Almenna leigufélagið ehf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 19. júní 2019

Almenna leigufélagið ehf. lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokkunum AL260148 og AL231124 sem gefnir eru út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL260148 er verðtryggður, til 30 ára, með jöfnum greiðslum á föstum 3,50% ársvöxtum. Skuldabréfaflokkurinn AL231124 er verðtryggður, til 6 ára en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkarnir eru veðtryggðir samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Útboðið var með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin var í hverju flokki. Heildartilboð í útboðinu voru 11 talsins og námu samtals 2.080 milljónir króna að nafnverði.

Alls bárust 8 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL260148 að nafnvirði 1.680 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,20% - 3,30%. Tilboðum að fjárhæð 860 milljónum króna var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildarstærð flokksins verður 11.040 milljónir króna, að nafnvirði, eftir viðbótarútgáfuna.

Alls bárust 3 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL231124 að nafnvirði 400 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,60% - 2,70%. Öllum tilboðum var tekið í skuldabréfaflokkinn.

Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á núverandi skuldum félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 26. júní 2019 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf., þann sama dag.

Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is