English
Published: 2019-06-12 21:21:22 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Other information disclosed according to the rules of the Exchange

Lykill fjármögnun: Niðurstaða víxlaútboðs

Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á 6 mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL191216. Heildareftirspurn í útboðinu nam 1.040 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 940 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 5,05% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er þriðjudagurinn 18. júní 2019.

Fossar markaðir höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. júní 2019.

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700