English Icelandic
Birt: 2019-06-12 19:05:00 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 23 tilboð upp á 4.280 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.060 milljónir kr.

Í heild bárust 7 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 720 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,40% - 4,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 340 milljónir kr. á 4,45% flötum vöxtum.

Í heild bárust 16 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.560 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,45% - 4,62%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 720 milljónir á 4,50% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. júní næstkomandi.                                                                                                                  

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760