English Icelandic
Birt: 2019-06-12 17:45:37 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 23 talsins og námu samtals 4.040 m. kr. að nafnverði.

Fjögur tilboð að fjárhæð 180 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,45%-4,54%. Tilboðum að fjárhæð 160 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,49%. Heildarstærð flokksins verður 5.420 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fjögur tilboð að fjárhæð 1.600 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,61%-4,66%. Tilboðum að fjárhæð 1.500 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,65%. Heildarstærð flokksins verður 12.640 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Átta tilboð að fjárhæð 1.380 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,55%-1,64%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,64%. Heildarstærð flokksins verður 36.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sjö tilboð að fjárhæð 880 m. kr. að nafnverði í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,53%-1,58%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,58%. Heildarstærð flokksins verður 40.620 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Samhliða útboðinu fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í ofangreindu útboði með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CB 19 á fyrirframákveðna verðinu 100,705. Niðurstaðan leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 600 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CB 19.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. júní 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.