English
Published: 2019-06-06 15:30:59 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Other information disclosed according to the rules of the Exchange

Lykill fjármögnun: Útboð á víxlum 12. júní 2019

Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 12. júní 2019. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYKILL191216.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Tekið er við tilboðum til kl. 17:00 miðvikudaginn 12. júní og uppgjör viðskipta fer fram þann 18. júní 2019. Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@fossarmarkets.com.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds víxilflokks eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700