Icelandic
Birt: 2019-06-03 10:47:15 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringasviðs Reykjavíkurborgar

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar lét af starfi fjármálastjóra fyrir aldurs sakir 31. maí sl. Jafnframt skal upplýst að borgarráð réð á fundi sínum 16. maí sl. Halldóru Káradóttur í starf fjármálastjóra og sviðsstjóra nýs sviðs fjármála og áhættustýringar Reykjavíkurborgar og tók hún við starfinu 1. júní sl.

Sjá nánar meðfylgjandi frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringasviðs

Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Eiríksson
Borgarritari
Sími: 411-1111