Icelandic
Birt: 2019-05-29 19:00:20 CEST
Brim hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Uppgjör HB Granda hf. á fyrsta ársfjórðungi 2019

  • Rekstrartekjur samstæðunnar voru 58,0 m€
  • EBITDA var 9,7 m€ (16,7%)
  • Hagnaður tímabilsins var 3,9 m€
  • Handbært fé frá rekstri nam 22,2 m€

Rekstur fyrstu þriggja mánaða ársins 2019

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2019 námu 58,0 m€, samanborið við 50,2 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 9,7 m€ eða 16,7% af rekstrartekjum, en var 7,8 m€ eða 15,5% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 0,7 m€, en voru neikvæð um 1,3 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 0,05 m€, en voru jákvæð um 1,4 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 5,0 m€ og hagnaður tímabilsins var 3,9 m€. 

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 656,8 m€ í lok mars 2019. Þar af voru fastafjármunir 554,5 m€ og veltufjármunir 102,3 m€.  Eigið fé nam 270,4 m€, eiginfjárhlutfall í lok mars var 41,2%, en var 41,9% í lok árs 2018. Heildarskuldir félagsins voru í marslok 386,4 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 22,2 m€ á tímabilinu, en nam 9,9 m€ á sama tíma fyrra árs.  Fjárfestingarhreyfingar voru jákvæðar um 6,2 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 22,3 m€.  Handbært fé hækkaði því um 6,1 m€ á tímabilinu og var í lok mars 44,4 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta ársfjórðungs 2019 (1 evra = 135,78 kr) verða tekjur 7,9 milljarðar króna, EBITDA 1,3 milljarður og hagnaður 0,5 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2019 (1 evra = 137,12 kr) verða eignir samtals 90,1 milljarðar króna, skuldir 53,0 milljarðar og eigið fé 37,1 milljarðar.

Skipastóll og afli

Í febrúar var Helgu Maríu lagt, og eru nú átta skip í flota samstæðunnar.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2019 var afli skipa félagsins 13,0 þúsund tonn af botnfiski og 14,8 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda hf.:

„Afkoman á ársfjórðungnum var ekki viðunandi fyrir eins stórt félag og HB Granda. EBITDA hækkaði í 9,7 milljónir evra úr 7,8 milljónum fyrir sama tímabil í fyrra, sem er gott, en hafa þarf í huga að efnahagsreikningurinn er umtalsvert stærri núna en þá. Það skiptir miklu að hafa augastað á þeim fjármunum sem liggja undir við að búa til rekstrarhagnað. Vissulega var það áfall fyrir okkur að ekki voru heimilaðar loðnuveiðar í vetur en við eigum samt að geta gert betur og að því stefnum við.“

Kynningarfundur þann 31. maí 2019

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi verður haldinn föstudaginn 31. maí klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Guðmundur Kristjánsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.


Viðhengi


Afkoma HB Granda hf 1Q2019.pdf
HB Grandi Arshlutareikn 31.03.2019.pdf