Icelandic
Birt: 2019-05-20 18:05:51 CEST
Festi hf.
Reikningsskil

Festi hf.: Afkoma á 1. ársfjórðungi 2019

Helstu niðurstöður:

  • Fjölgun félaga í samstæðu skýrir að mestu hækkanir á tekjum og gjöldum á 1F 2019 í samanburði við 1F 2018 og gerir það samanburð milli tímabila erfiðan
  • EBITDA að undanskildum kostnaði við kaup á Hlekk nam 1.367 m.kr. á 1F 2019 samanborið við 436 m.kr. 1F 2018
  • Minni umsvif voru í sölu annarra vara en eldsneytis í samstæðunni en gert hafði verði ráð fyrir á 1F 2019 en þó skar Krónan sig úr þar sem sala var umfram væntingar
  • Selt magn af bensíni og gasolíu minnkaði um 2,4% á milli 1F 2019 og 1F 2018, að mestu leyti á höfuðborgarsvæðinu
  • Eigið fé var 26.021 m.kr. og eiginfjárhlutfall 32,0% í lok 1F 2019

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:
„Við erum afskaplega ánægð með þá góðu byrjun sem við höfum fengið á fyrsta ársfjórðungi þrátt fyrir þá verkfallsógn sem blasti við, loðnubrest sem hefur mikil áhrif víða og aðrar utanaðkomandi aðstæður sem hefðu getað sett strik í reikninginn.  Góður gangur er hjá Krónunni og var sala umfram væntingar á fjórðungnum sem verður að teljast mjög góður árangur. Hér innan Festi sjáum við ánægjulega þróun sem gefur góð fyrirheit um framtíðina. Rekstur þeirra fyrirtækja sem saman mynda þessa samstæðu gengur vel og samþætting þeirra er komin umfram áætlanir. Það eru því jákvæð merki víða og við finnum vel fyrir góðum byr í seglin.“

Nánari upplýsingar er að finna í afkomutilkynningu í viðhengi.


Viðhengi


Festi hf. - Afkomutilkynning Q1 2019.pdf
Festi hf. - Arshlutareikningur Q1 2019.pdf
Festi hf. - Company announcement Q1 2019.pdf
Festi hf. - Interim Financial Statment Q1 2019.pdf