English Icelandic
Birt: 2019-05-16 18:10:24 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 56 talsins og námu samtals 9.960 m. kr. að nafnverði.

Átta tilboð að fjárhæð 880 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,70%-4,77%. Tilboðum að fjárhæð 580 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,71%. Heildarstærð flokksins verður 5.260 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sautján tilboð að fjárhæð 3.700 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,69%-4,76%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,76%. Heildarstærð flokksins verður 11.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 1.560 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,70%-1,81%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,81%. Heildarstærð flokksins verður 34.760 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Það barst 21 tilboð að fjárhæð 3.820 m. kr. að nafnverði í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,72%-1,80%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,80%. Heildarstærð flokksins verður 39.740 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. maí 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.