English Icelandic
Birt: 2019-05-14 18:45:24 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 21 tilboð upp á 4.060 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.620 milljónir kr.

Í heild bárust 6 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 800 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,70% - 4,90%. Engum tilboðum var tekið.

Í heild bárust 15 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.260 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,68% - 4,80%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.620 milljónir á 4,70% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. maí næstkomandi.          

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760