English Icelandic
Birt: 2019-05-07 19:28:28 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.500 m. kr. og fjöldi tilboða var 29.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 17 tilboð að nafnvirði samtals 2.840 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,75-1,85%. Tilboðum að nafnvirði 1.140 m.kr. á kröfunni 1,81% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 10.060 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 12 tilboð að nafnvirði samtals 2.660 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 4,76-4,83%.  Tilboðum að nafnvirði 2.360 m.kr. á kröfunni 4,80% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 11.420 m.kr eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Arion banki 200m.kr. af ARION CBI 19 og 40m.kr. af ARION CB 19 gegn sölu í útboðinu.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 14. maí 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760