English Icelandic
Birt: 2019-05-06 09:00:00 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Flutningatölur apríl 2019

Í apríl var farþegafjöldi Icelandair 318 þúsund og jókst um 19%.  Framboð var aukið um 8%. Sætanýting var 83,7% samanborið við 77,2% í apríl í fyrra. Ferðamannamarkaðurinn til Íslands var stærsti markaður félagsins í mars með 40% af heildarfarþegafjölda.  Farþegum á þessum markaði fjölgaði um 39 þúsund á milli ára eða 44%.  Farþegum fjölgaði einnig mikið á heimamarkaðinum frá Íslandi eða um 24 þúsund sem samsvarar 56% aukningu á milli ára.  Fjöldi fluttra farþega á N-Atlantshafinu dróst aftur á móti saman á milli ára um tæp 13 þúsund eða 9%. Komustundvísi í leiðakerfi félagsins í apríl nam 67% samanborið við 76% í apríl á síðasta ári.  Skýrist það af mikilli röskun sem varð á flugi vegna slæms veðurs á Íslandi í tvo daga.

Farþegar Air Iceland Connect voru 22 þúsund og fækkaði um 20% á milli ára. Skýrist það aðallega af flugi til Aberdeen og Belfast sem var lagt niður í maí á síðasta ári.  Sætanýting nam 69,0% og jókst um 8,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 26% milli ára vegna færri verkefna en á sama tíma fyrir ári og viðhalds flugvéla. Fraktflutningar jukust um 18%. Seldar gistinætur hjá hótelum félagsins jukust um 11%. Herbergjanýting var 69,2% samanborið við 70,7% í apríl 2018.

ICELANDAIR APR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
 Farþegar til Íslands 128.242 44% 439.488 21%
 Farþegar frá Íslandi 66.944 56% 181.659 23%
 Farþegar um Ísland 123.124 -9% 399.892 -4%
Fjöldi farþega 318.310 19% 1.021.039 10%
Sætanýting 83,7% 6,5 %-stig 78,5% 1,8 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.170,1 8% 4.057,9 8%
Seldir sætiskm. (RPK'000,000) 978,8 17% 3.184,8 11%
Meðal flugleið (KM) 3.152 1% 3.125 1%
Stundvísi (komur) 67,0% -9,5 %-stig 75,0% 1,8 %-stig
         
AIR ICELAND CONNECT APR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Fjöldi farþega 22.174 -20% 84.303 -16%
Sætanýting 69,0% 8,4 %-stig 65,1% 4,9 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 10,9 -38% 41,7 -32%
         
LEIGUFLUG APR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Flugvélanýting 88,9% -11,1 %-stig 90,7% -9,3 %-stig
Seldir blokktímar 2.363 -26% 9.841 -17%
         
FRAKTFLUTNINGAR APR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 11.190 18% 43.534 9%
         
HÓTEL APR 19 BR. (%) ÁTÞ 19 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 32.027 13% 127.269 18%
Seldar gistinætur 22.167 11% 92.288 13%
Herbergjanýting 69,2% -1,4 %-stig 72,5% -3,1 %-stig

Upplýsingar:

Markaður: Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group netfang: iris@icelandairgroup.is
Fjölmiðlar: Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi.  Netfang: asdis@icelandair.is