English Icelandic
Birt: 2019-05-02 18:25:53 CEST
Landsbankinn hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Landsbankinn hf.: Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2019

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 6,8 milljarða króna eftir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019, saman­borið við 8,1 milljarðs króna hagnað á sama tímabili árið 2018. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 11,2% á árs­grundvelli, samanborið við 13,7% á sama tímabili 2018.

Hreinar vaxtatekjur voru 10,2 milljarðar króna og hækkuðu um 6,3% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 2,1 milljarði króna og hækkuðu um 21,8% frá sama tímabili árið áður. Virðisrýrnun útlána nam 1 milljarði króna á tímabilinu, samanborið við jákvæðar virðisbreytingar upp á 1 milljarð króna á sama tímabili í fyrra. Í lok mars 2019 var vanskilahlutfallið 0,7%, samanborið við 0,6% á sama tíma 2018.

Rekstrartekjur bankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019 námu 15 milljörðum króna, samanborið við 16,8 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur námu 3,7 milljörðum króna samanborið við 4,5 milljarða króna á sama tímabili árið áður.

Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,5% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2019 en var 2,7% á sama tímabili árið áður.

Rekstrarkostnaður bankans fyrstu þrjá mánuði ársins 2019 nam 6,2 milljörðum króna, samanborið við 6 milljarða króna á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 3,4%.

Kostnaðarhlutfall fyrstu þrjá mánuði ársins var 38,7%, samanborið við 37,9% á sama tímabili árið 2018.

Útlán jukust um 2,9% frá áramótum, eða um tæpan 31 milljarð króna. Útlánaaukning tímabilsins  er bæði hjá einstakling­um og fyrirtækjum. Innlán hjá Landsbankanum jukust um 2 milljarða frá áramótum.

Eigið fé Landsbankans var 246,2 milljarðar króna þann 31. mars sl. og eiginfjárhlutfallið var 23,8%.  Á aðalfundi bankans, sem haldinn var þann 4. apríl 2019, var samþykkt tillaga bankaráðs um að greiða arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2018 að fjárhæð 9.922 milljónir króna. Arðgreiðslan kemur til lækkunar á eigin fé á öðrum ársfjórðungi 2019.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Rekstur og efnahagur Landsbankans er traustur og arðsemi bankans góð, eins og gott uppgjör bankans fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 ber með sér. Útlán héldu áfram að aukast, bæði til fyrirtækja og einstaklinga, og útlánasafn bankans er sterkt. Þá hækkuðu þjónustutekjur samhliða auknum umsvifum.

Þeim fjölmörgu stafrænu lausnum sem bankinn hefur kynnt undanfarið hefur verið mjög vel tekið af viðskiptavinum og þær hafa þegar leitt til meiri skilvirkni í rekstri bankans. Landsbankinn hefur undanfarið fjárfest töluvert í innleiðingu nýrra grunnkerfa og byggir áframhaldandi nýsköpun og þróun á bankaþjónustu á sterkum stoðum. Um leið og fjárfest hefur verið í nýrri tækni hefur aðhalds verið gætt í rekstri og þannig tekist að halda rekstrarkostnaði í skefjum. Kostnaðarhlutfall bankans á fyrsta ársfjórðungi var 38,7% sem er umtalsvert lægra en markmið bankans segir til um.

Uppgjörið fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 er því gott veganesti fyrir árið. Undanfarið hafa sviptingar í ferðaþjónustu og óvissa á vinnumarkaði sett mikinn svip á efnahagslífið. Áhrifanna gætir í uppgjörinu þar sem IFRS 9 staðallinn gerir ráð fyrir að horft sé til framtíðar við mat á væntu útlánatapi. Á hinn bóginn verður að hafa í huga að áhrifin á efnahagslífið hafa almennt ekki komið fram enn. Landsbankinn mun áfram leggja ríka áherslu á að veita viðskiptavinum frábæra þjónustu og jafnframt tryggja að rekstur bankans sé traustur til lengri og skemmri tíma.“

Nánari upplýsingar veita:         

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is og í síma 410 6263

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310

Viðhengi


Landsbankinn_arshlutareikningur_samstu_31.3.2019.pdf
Landsbankinn_frettatilkynning_31.3.2019.PDF
Landsbankinn_glrukynning_31.3.2019.pdf