Icelandic
Birt: 2019-04-30 14:30:00 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Reykjavíkurborg – Ársreikningur 2018

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018 var lagður fyrir borgarráð í dag 30. apríl og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn þann 7. maí næstkomandi.  

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 4.726 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 4.074 mkr á árinu.  Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af 299 mkr. hærri skatttekjum en áætlun gerði ráð fyrir.  Einnig var gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga 297 mr. lægri en áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 5.181 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 4.671 mkr. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 12.342 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 17.797 mkr.
Helstu frávik frá áætlun samstæðu má rekja til lægri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða og hærri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 27.108 mkr.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 641.574 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 324.387 mkr og eigið fé var 317.187 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 17.219 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49,4% en var 49,0% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf.

Reykjavík, 30. apríl 2019.

Nánari upplýsingar veitir
Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.

Viðhengi


Reykjavikurborg arsreikningur 2018.pdf
Reykjavikurborg - Skyrsla Fjarmalaskrifstofu me arsreikningi 2018.pdf