Icelandic
Birt: 2019-04-17 12:59:24 CEST
Norðurþing
Ársreikningur

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2018

Norðurþing
Reikningsskil

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2018

Byggðarráð Norðurþings samþykkti ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2018 á fundi sínum þann 11. apríl 2019 og undirritaði hann þann 16. apríl þegar fyrri umræða í sveitarstjórn fór fram.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 14. maí 2019, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2018 námu 4.721 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 301 milljón króna betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 457 milljónum í restrarafgang. Betri afkomu en gert var ráð fyrir má fyrst og fremst rekja til hærri tekna.  Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 2.029 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 970 milljónum króna.  Handbært fé samstæðunnar í árslok nam tæpum 800 milljónum króna. 

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 2.380 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu og dótturfélögum þess nam 264 stöðugildum. Rekja má lægri launatölur en áætlun gerði ráð fyrir til minni hækkunar á lífeyrisskuldbindingu en gert var ráð fyrir. Íbúafjöldi sveitarfélagsins 1. desember 2018 var 3.043 og fækkaði um 191 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 103% árið 2017 í 94% árið 2018. 

Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 17. apríl 2019

Viðhengi


Arsreikningur Norurings og stofnana fyrir ari 2018.pdf