English Icelandic
Birt: 2019-04-15 18:41:33 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, mánudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 20 tilboð upp á 3.820 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.820 milljónir kr.

Í heild bárust 5 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 700 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,64% - 4,80%. Engum tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn.

Í heild bárust 15 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.120 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,70% - 4,80%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.820 milljónir á 4,79% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 23. apríl næstkomandi.        

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760