Niðurstaða úr skuldabréfaútboði ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg lauk í gær, 10. apríl 2019, útboði í skuldabréfaflokki Reykjavíkurborgar, RVKN 35 1. Seld voru skuldabréf í flokknum að fjárhæð 1.500 m.kr að nafnvirði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 4,95% Fyrir höfðu verið gefin út bréf í þessum flokki að nafnvirði 6.730 m.kr. og því verður heildarstærð hans eftir útboðið 8.230 m.kr. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veita: Birgir Björn Sigurjónsson, Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, sími: 693-9321, netfang: bbs@rvk.is Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., sími: 840-4145, netfang: dadi.kristjansson@fossarmarkets.com
|