Icelandic
Birt: 2019-04-10 20:06:37 CEST
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Almenna leigufélagið ehf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 10. apríl 2019

Almenna leigufélagið ehf. lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokkunum AL260148 og AL231124 sem gefnir eru út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL260148 er verðtryggður, til 30 ára, með jöfnum greiðslum á föstum 3,50% ársvöxtum. Skuldabréfaflokkurinn AL231124 er verðtryggður, til 6 ára en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkarnir eru veðtryggðir samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Útboðið var með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin var í hverjum flokki. Heildartilboð í útboðinu voru 20 talsins og námu samtals 4.720 milljónir króna að nafnverði.

Alls bárust 18 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL260148 að nafnvirði 4.520 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,25% - 3,60%. Tilboðum að fjárhæð 2.280 milljónum króna var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Heildarstærð flokksins verður 10.180 milljónir króna, að nafnvirði, eftir viðbótarútgáfuna.

Alls bárust 2 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL231124 að nafnvirði 200 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,80% - 3,44%. Engum tilboðum var tekið í skuldabréfaflokkinn.

Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á núverandi skuldum félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 17. apríl 2019 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf., þann sama dag.

Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is