English Icelandic
Birt: 2019-04-04 22:35:41 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Niðurstöður hluthafafundar

Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2019

Í dag var haldinn aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur vegna ársins 2018. Kjöri stjórnar var lýst á fundinum. Í henni sitja Brynhildur Davíðsdóttir, sem er formaður stjórnar, Gylfi Magnússon, varaformaður, Sigríður Rut Júlíusdóttir, Hildur Björnsdóttir, Kjartan Magnússon og Valgarður Lyngdal Jónsson. Áheyrnarfulltrúi er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. Samþykkt var arðgreiðsla að fjárhæð 1.500 milljónir króna að því gefnu að arðgreiðsluskilyrði verði uppfyllt fyrir og eftir arðgreiðslu.

Á fundinum var Ársskýrsla OR 2018 kynnt. Hún er rafræn og gagnvirk og nær til umhverfisþátta í starfsemi samstæðu OR, samfélagsþátta, stjórnhátta og fjármála. Skýrslan og ársreikningur samstæðu OR 2018 voru gefin út 14. mars síðastliðinn. Ársreikningurinn var staðfestur á aðalfundinum.

Tengill á Ársskýrslu OR 2018.

Endurskoðunarfyrirtækið Grant Thornton var kosið endurskoðunarfyrirtæki OR á fundinum.

Þrjú sveitarfélög eiga Orkuveitu Reykjavíkur; Reykjavíkurborg (93,539%), Akraneskaupstaður (5,528%) og Borgarbyggð (0,933%).

Nánari upplýsingar:

Eiríkur Hjálmarsson

upplýsingafulltrúi

516 6100