English Icelandic
Birt: 2019-04-04 21:04:58 CEST
Landsbankinn hf.
Niðurstöður hluthafafundar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2019

Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í dag, 4. apríl, samþykkti að bankinn greiði samtals út arð að fjárhæð 9,9 milljarða króna á árinu 2019. Alls munu arðgreiðslur bankans á árunum 2013-2019 því nema um 142 milljörðum króna.

Í tengslum við fundinn var samfélagsskýrsla Landsbankans fyrir árið 2018 gefin út en ársskýrsla Landsbankans fyrir árið 2018 kom út samhliða ársuppgjöri þann 7. febrúar sl. Báðar skýrslunar voru eingöngu gefnar út á rafrænu formi og eru aðgengilegar á vef bankans.

Aðalfundurinn fór fram á Grand hóteli í Sigtúni í Reykjavík. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Skýrsla stjórnar

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, fjallaði í ræðu sinni um góðan árangur og sterka stöðu Landsbankans, breytingar í fjármálaþjónustu, sértæka skatta á íslenska banka sem skekktu verulega samkeppnisstöðu á fjármálamarkaði, nýja starfskjarastefnu og um samfélagsábyrgð bankans. Eftir langt tímabil kröftugs hagvaxtar samfara lágri og stöðugri verðbólgu væri útlit fyrir að hægja myndi verulega á efnahagsumsvifum á árinu 2019 samhliða minni umsvifum í ferðaþjónustu í kjölfar gjaldþrots WOW air. Skuldsetning fyrirtækja og heimila væri nú hóflegri en áður sem yki líkur á því að áhrif af minnkandi hagvexti yrðu almennt mild.

Uppgjör Landsbankans 2018

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, kynnti uppgjör Landsbankans fyrir árið 2018. Á árinu nam hagnaður bankans 19,3 milljörðum króna, arðsemi eiginfjár var 8,2% og kostnaðarhlutfall var 45,5%. Útlán jukust um 138,9 milljarða króna, bæði til einstaklinga og fyrirtækja og vanskilahlutfall lækkaði í 0,8%. Eigið fé bankans nam 239,6 milljörðum króna í árslok 2019 og eiginfjárhlutfallið var 24,9%, svo helstu atriði úr uppgjörinu séu nefnd.

Lilja fjallaði um vaxandi markaðshlutdeild Landsbankans en fimmta árið í röð var bankinn með hæstu markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði, eða um 38%. Markaðshlutdeild bankans á fyrirtækjamarkaði var 34%. Þá hefur ánægja viðskiptavina með þjónustu bankans vaxið og traust til bankans aukist.

Lilja sagði að rekstur Landsbankans væri traustur. Mikil áhersla væri á að bæta þjónustu við viðskiptavini og bankinn hefði undanfarið kynnt fjölmargar nýjungar í stafrænni þjónustu, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Samþykkt að greiða 9,9 milljarða króna arð

Á aðalfundinum var samþykkt tillaga bankaráðs um að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2018 sem nemur 0,42 krónu á hlut, eða samtals 9.922 milljónum króna. Arðurinn verður greiddur út í tveimur jafnháum greiðslum, annars vegar 10. apríl 2019 og hins vegar 2. október 2019. Arðgreiðslan nemur um 51,5% af hagnaði ársins 2018.

Arðgreiðslurnar eru í samræmi við arðgreiðslustefnu Landsbankans sem bankaráð samþykkti fyrr á þessu ári. Í arðgreiðslustefnunni kemur fram að bankinn stefni að því að reglulegar arðgreiðslur til hluthafa verði að jafnaði hærri en sem nemur 50% af hagnaði fyrra árs. Einnig er stefnt að sérstökum arðgreiðslum til þess að auka hagkvæmni í fjármagnsskipan bankans eftir því sem tilefni er til. Við ákvarðanir um arðgreiðslur þarf sem fyrr að tryggja að bankinn viðhaldi sterkri fjárhagsstöðu til framtíðar.

Kjörið í bankaráð Landsbankans

Eftirtalin voru kjörin aðalmenn í bankaráð Landsbankans:

  • Helga Björk Eiríksdóttir (formaður)
  • Berglind Svavarsdóttir
  • Einar Þór Bjarnason
  • Guðbrandur Sigurðsson
  • Hersir Sigurgeirsson
  • Sigríður Benediksdóttir
  • Þorvaldur Jacobsen

Eftirtalin voru kjörin varamenn í bankaráð Landsbankans:

  • Guðrún Ó. Blöndal
  • Sigurður Jón Björnsson

Nánari upplýsingar veita:            

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is og í síma 410 6263

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310

Viðhengi


Niurstour aalfundar 2019.pdf