English Icelandic
Birt: 2019-04-03 19:13:27 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3.940 m. kr. og fjöldi tilboða var 24.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 13 tilboð að nafnvirði samtals 2.720 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,97-2,00%. Tilboðum að nafnvirði 1.020 m.kr. á kröfunni 1,98% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 8.920 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 11 tilboð að nafnvirði samtals 1.220 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 4,92-4,98%.  Tilboðum að nafnvirði 700 m.kr. á kröfunni 4,95% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 9.060 m.kr eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu varðandi endurkaup á ARION CB 19 og ARION CBI 19 bárust engin tilboð að þessu sinni.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. apríl 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760