S&P Global Ratings breytir horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar vegna bættrar fjárhagsstöðuMatsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar. Fyrirtækið hefur jafnframt staðfest lánshæfiseinkunnina BBB fyrir lang- og skammtímaskuldir, með og án ríkisábyrgðar. Að sögn S&P Global Ratings endurspeglar breytingin á horfunum jákvæða þróun Landsvirkjunar m.a. með tilliti til aukins fjárhagslegs styrkleika og minnkandi markaðsáhættu. Jákvæðu horfurnar endurspegla möguleikann á hækkun á lánshæfiseinkunn fyrirtækisins innan tveggja ára ef Landsvirkjun viðheldur bættri fjárhagsstöðu. Reykjavík, 21. mars 2019 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Sími 515 9000, netfang: rafnar.larusson@landsvirkjun.is
|