Síminn hf. - Niðurstöður aðalfundar 21. mars 2019 og útgáfa ársskýrslu fyrir árið 2018Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var fyrr í dag ásamt samþykktum félagsins. Sjálfkjörið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er þannig skipuð: - Bertrand B. Kan, formaður stjórnar
- Helga Valfells, varaformaður stjórnar
- Bjarni Þorvarðarson
- Ksenia Nekrasova
- Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð. Ársskýrsla Símans hf. fyrir árið 2018 hefur verið gefin út. Skýrslan er eingöngu gefin út í vefútgáfu. Skýrsluna má nálgast á heimasíðu félagsins á vefslóðinni: www.siminn.is/arsskyrsla2018
|