Icelandic
Birt: 2019-03-21 13:57:20 CET
Landsbréf hf.
Ársreikningur

Hagnaður Landsbréfa 844 milljónir á árinu 2018

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2018.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 844 milljónum króna eftir skatta á árinu 2018.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 2.030 milljónum króna á árinu 2018 og nam eigið fé í árslok um 4.006 milljónum króna.  
  • Í lok tímabilsins voru eignir í stýringu 155 milljarðar króna og voru um 12 þúsund einstaklingar og lögaðilar sem áttu hluti í sjóðum Landsbréfa.
  • Starfsmenn voru 20 í árslok en fjöldi ársverka á árinu var 19. 

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa: 

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu þrátt fyrir krefjandi aðstæður á verðbréfamarkaði og skilaði félagið góðum hagnaði. Ávöxtun sjóða félagsins var almennt góð og skilaði til að mynda Landsbréf – Global Equity Fund bestu ávöxtun allra sjóða á landinu á árinu 2018 samkvæmt Keldunni. Landsbréf munu halda áfram að leggja metnað sinn í að hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspegla það í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, en þar má sem fyrr finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Viðhengi


Landsbref - arsreikningur 2018.pdf