Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður aðalfundar 14. mars 2019.Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í dag, 14. mars 2019, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, heimild til að kaupa eigin hluti m.a. á grundvelli endurkaupaáætlunar, starfskjarastefnu félagsins og þóknun til stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar. Stjórnin félagsins var sjálfkjörin og verkaskipting innan stjórnarinnar er óbreytt frá því sem var á liðnu starfsári, en stjórnin er skipuð sem hér segir: Í aðalstjórn: Örvar Kærnested formaður, Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður, Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi, Einar Örn Ólafsson meðstjórnandi og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn: Bjarki Már Baxter og Bryndís Hrafnkelsdóttir. Í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta starfsár voru sjálfkjörnar: Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir og Jakobína H. Árnadóttir. Nánar um niðurstöður aðalfundarins vísast til viðhengis sem fylgir tilkynningu þessari. Ársskýrslu félagsins fyrir árið 2018 má finna á heimasíðu félagsins eða á eftirfarandi slóð: http://arsskyrsla.tm.is/
|