English Icelandic
Birt: 2019-03-14 18:20:25 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði

Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 17 tilboð upp á 3.320 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.320 milljónir kr.

Í heild bárust 5 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 680 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,80% - 4,90%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 420 milljónir kr. á 4,85% flötum vöxtum.

Í heild bárust 12 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.640 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,80% - 4,92%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 900 milljónir á 4,89% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. mars næstkomandi.       

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760