English Icelandic
Birt: 2019-03-14 15:35:22 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil

Traust afkoma Orkuveitu Reykjavíkur 2018

Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2018 sýnir að fjárhagur fyrirtækisins er traustur og afkoma trygg, þrátt fyrir sveiflur í ytri skilyrðum. Þar er lykilatriði góð tök á rekstrarkostnaði en tekjur jukust á árinu með aukinni orkuvinnslu og vaxandi notkun veituþjónustunnar. Rekstrartekjur jukust um 5,2% frá árinu 2017. Rekstrarkostnaður jókst um 0,1%. Rekstrarhagnaður óx milli áranna 2017 og 2018 um rúman einn milljarð króna.

Ársreikningur samstæðu OR var samþykktur af stjórn í dag. Jafnframt samþykkti stjórn að leggja til við aðalfund OR að eigendur fyrirtækisins – Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð – fái greiddan arð sem nemur 1.500 milljónum króna vegna rekstrarársins. Ársskýrsla OR er jafnframt gefin út í dag. Þar er með skipulegum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir umhverfisþáttum starfseminnar árið 2018, loftslagsáhrifum, samfélagsþáttum, stjórnháttum og fjármálum á árinu.

Smelltu hér til að sjá Ársskýrslu OR 2018

Meira en 100 milljón rúmmetrar af heitu vatni

Kalt og úrkomusamt ár á helsta starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur hafði þau áhrif að vinnsla á köldu vatni, sem meðal annars er nýtt til að vökva garða, minnkaði en í fyrsta skipti fór heitavatnsvinnsla yfir 100 milljón rúmmetra. Framundan eru talsverðar fjárfestingar til að mæta þörf fyrir meira vatn til húshitunar og til að tryggja heilnæmi neysluvatns úr Heiðmörk. Uppbygging nýs húsnæðis er mikil, ferðamönnum fjölgaði og viðskiptavinum á samkeppnismörkuðum sömuleiðis. Þá er sífellt betra jafnvægi að nást milli orkuvinnslu í Hellisheiðarvirkjun og afkasta jarðhitasvæðanna sem hún nýtir og jókst orkuvinnsla þar á árinu. Aukin vinnsla og aukin eftirspurn eftir þjónustu fyrirtækjanna innan OR-samstæðunnar – Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur – skilar vaxandi tekjum milli ára. Álverð lækkaði og ræður það mestu um að reiknaðar stærðir ársreikningsins voru óhagstæðar. Engu að síður var heildarniðurstaða ársins jákvæð sem nemur tæpum sex milljörðum króna. Það er veruleg lækkun frá fyrra ári þegar þróun álverðs var hagstæð.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR

Enn á ný sjáum við traust tök á rekstri Orkuveitusamstæðunnar skila fyrirtækjunum góðri afkomu.  Sú menning sem hér hefur skapast – að velta fyrir sér hverri krónu áður en henni er ráðstafað – er á meðal þeirra verðmæta sem Orkuveita Reykjavíkur býr að. Ytri skilyrði breytast án þess að við fáum um þau ráðið. Markviss vinna að áhættuvörnum leyfir okkur þó að leggja þennan ársreikning fyrir eigendur fyrirtækisins með nokkru stolti.

Hér eftir sem hingað til munu viðskiptavinir njóta þess þegar vel tekst til með reksturinn. Samkvæmt ákvörðun þeirra sveitarfélaga sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur munu viðskiptavinir njóta ábatans af rekstrinum og verð á margri okkar þjónustu hefur lækkað ítrekað eða staðið í stað síðustu misseri. Ef okkur lánast að viðhalda þeirri skörpu sýn sem við höfum haft á rekstrarútgjöldin verður sú þróun, að öðru jöfnu, viðvarandi.

Uppgjör okkar fyrir árið 2018 snýst um fleira en fjárhaginn. Við leggjum spilin á borðið varðandi ábyrgð okkar í samfélaginu og umhverfinu í Ársskýrslu OR 2018. Tilgangur skýrslunnar er ekki síst að vera grundvöllur umræðu um á hvaða sviðum við þurfum að standa okkur betur.

OR og Heimsmarkmiðin

Ársskýrsla OR 2018 er samþætt skýrsla, skráð eftir alþjóðlegum viðmiðum sem þróuð hafa verið í samvinnu kauphalla og Sameinuðu þjóðanna. Þar er gerð grein fyrir loftslagsáhrifum starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna, öðrum umhverfisáhrifum rekstursins, stjórnháttum innan samstæðunnar og margvíslegum samfélagsþáttum. Ársskýrsla OR 2018 er einungis rafræn.

Yfirlit stjórnenda

 201320142015201620172018
Fjárhæðir í milljónum króna      
Rekstrartekjur39.209  38.526  40.357  41.423  43.666  45.916 
Rekstrarkostnaður(13.126)(13.681)(15.183)(16.062)(17.285)(17.299)
       
EBITDA26.084  24.845  25.174  25.361  26.380  28.617 
Afskriftir(8.927)(9.152)(10.747)(10.392)(9.063)(10.271)
Rekstrarhagnaður (EBIT)17.157  15.693  14.428  14.968  17.318  18.346 
       
Reiknaður tekjuskattur tímabilsins(7.572)(2.004)587 (4.702)(5.328)1.380
Afkoma tímabilsins3.350  8.871  4.176  13.352  16.072  5.978 
       
Aðrir rekstrarvísar      
Bein losun CO2-ígilda – Umfang 1 (tonn)60.28055.98252.04543.90340.38643.509
Hreinsun og binding brennisteinsvetnis
frá Hellisheiðarvirkjun (%)
0%13%26%47%68%75%
       
Raforkuvinnsla (gígavattstundir)3.4223.4433.2493.4113.4733.507
Heitavatnsvinnsla (milljónir m3)9290959194102
Neysluvatnsvinnsla (milljónir m3)272929302928
       
Kynbundinn launamunur 4,6%3,7%2,3%2,1%(0,3%)(0,0%)
Konur meðal stjórnenda37%44%47%49%51%54%

Nánari upplýsingar:
Bjarni Bjarnason
Forstjóri
516 6100

Viðhengi


Arsreikningur samstu OR 2018.pdf