English Icelandic
Birt: 2019-03-12 17:00:21 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 20 talsins og námu samtals 3.900 m. kr. að nafnverði.

Níu tilboð að fjárhæð 1.320 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,53%-5,60%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 5,60%.  Heildarstærð flokksins verður 7.440 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimm tilboð að fjárhæð 920 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,89%-1,92%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,92%. Heildarstærð flokksins verður 32.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sex tilboð að fjárhæð 1.660 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 1,85%-1,93%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 1,93%. Heildarstærð flokksins verður 34.980 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. mars 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref